Einstaklingsmiðaðar krabbameinsrannsóknir
ValaMed þróar lyfjanæmispróf til að sníða krabbameinslyfjameðferð að hverjum einstaklingi.

ValaMed starfar við rannsóknir á heilbrigðissviði. Takmark fyrirtækisins er að þróa rannsóknaraðferðir til að auðvelda krabbameinslæknum og aðilum í lyfjaþróun að meta áhrif lyfja á frumur úr einstökum krabbameinsæxlum.

Krabbameinslyfjanæmispróf á æxli sjúklinga geta leitt í ljós hvaða krabbameinslyfjasamsetningar vinna lítið á æxlinu áður en lyfjameðferð hefst. Á þann hátt er komið í veg fyrir áhrifalausar meðferðir og aukaverkarnir sem þeim fylgja.

Lyfjanæmispróf ValaMed prófar lyfjasamsetningar að vali læknis á frumum sjúklingsins á rannsóknarstofu ValaMed. Notast er við fersk sýni frá sjúklingi og athuguð er geta lyfja til frumudráps.

ValaMed stefnir að frekari þróun á lyfjanæmisprófum ásamt því að útvíkka möguleika prófanna. Þar er sjónum helst beint að tengingu niðurstaða lyfjanæmisprófa við genatjáningu. Jafnframt að aðilar í lyfjaþróun eigi möguleika á því að prófa tilraunalyf með sömu aðferðum.